Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins og tónlistarskólanna í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Hljómsveitin starfar árlega í janúar og haldið er þriggja vikna hljómsveitanámskeið þar sem nemendur kynnast sinfónískum verkum og lýkur námskeiðinu með sinfóníutónleikum í Langholtskirkju.