Upphaf skólaárs haustið 2023

Kæru nemendur  og foreldrar/forsvarsmenn.

Kennsla hefst í Tónskóla Sigursveins fimmtudaginn 24. ágúst.


Hljóðfærakennarar munu hafa samband við nemendur sína vegna stundatöflugerðar ekki seinna en 21. ágúst.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans með því að senda póst á tonskolisigursveins@tonskolisigursveins.is eða í síma 568 5828 ef breytingar eru fyrirhugaðar á námsvist í skólanum. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 12-17. 

Skólagjöld verða innheimt í gegnum Sportabler frá 1. sept. þar sem einnig verður hægt að ráðstafa frístundastyrk Reykjavíkurborgar að upphæð 75 þús. og dreifa eftirstöðvunum á allt að 6 gjalddaga. 

Með von um ánægjulegan vetur í Tónskóla Sigursveins.

Skólaslit

verða föstudaginn 2. júní kl. 17 í Langholtskirkju.

Þar fá nemendur afhentar umsagnir eftir veturinn og stigprófsskírteini þar sem það á við. Einnig er útskrift nemenda sem þreyttu framhaldspróf í vetur ásamt skemmtilegum tónlistaratriðum. Við hvetjum nemendur til að mæta!

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna heldur tónleika í Langholtskirkju laugardaginn 28. janúar kl. 16.00.  

Almennt verð: 3500 kr. , Nemar, öryrkjar og eldri borgarar: 2000 kr. 

Efnisskrá:

G.F. Händel: Hörpukonsert í B-dúr op. 4 nr. 6

E. Grieg: Fjórir þættir úr Pétri Gaut, svítum 1 og 2

J. Brahms, úts. R. Meyer: úr sinfóníu nr. 1, 4. þáttur

J. Williams, úts. M. Story: Syrpa úr Harry Potter

Einleikari: Mahaut Ingiríður Matharel, harpa

Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni fjögurra tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, – Tónlistarskóla Garðabæjar, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar

Markmiðið með starfi sveitarinnar er að veita þeim sem komnir eru áleiðis í tónlistarnámi þjálfun í að leika í fullskipaðri sinfóníuhljómsveit.

Árlega æfir hljómsveitin allar helgar í janúar og lýkur æfingaferlinu með tónleikum. Í ár taka 98 nemendur þátt í hljómsveitarstarfinu og koma fram á tónleikunum.