Almenn kennsla í Tónskólanum hefst mánudaginn 26. ágúst. Við í Suzukideildinni ætlum að hefja hópastarfið, eins og oft áður, með upphitunardegi sem verður næstkomandi laugardag, 31. ágúst. Þá munum við hittast, spila saman og spjalla bæði á Engjateigi og í Laugarneskirkju. Fiðlu-, víólu- og píanónemendur byrja á Engjateigi en selló- og gítarnemendur verða allan tímann í Laugarneskirkju.
Æft verður frá kl. 9:30-11:30, sjá dagskrá hér fyrir neðan. Við hvetjum yngri
nemendur til þess að mæta fyrr og /eða staldra lengur við og hlusta á lengra
komna nemendur. Nýnemar og gestir eru hjartanlega velkomnir til að fylgjast
með og hlusta á allt sem fram fer þennan dag.
Kl.
11:45 verður
foreldrafræðslufundur fyrir ALLA
FORELDRA í Laugarneskirkju. Á meðan fundinum stendur verður
nestistími hjá börnunum niðri í safnaðarheimilinu – hver og einn kemur með sitt eigið nesti.
Að lokum, kl. 12:30 munum við enda dagskrána á stuttum tónleikum þar sem
allir munu koma fram.
Hlökkum til að hitta ykkur og eiga
saman góðan dag,
bestu kveðjur frá Suzukikennurunum