Hljóðfærakennarar hafa samband við nemendur sína vegna stundatöflugerðar dagana 21.-23. ágúst.
Nánari upplýsingar um tímasetningar tónfræðigreina, hóptíma í Suzukideild, æfingar strengjasveita og gítarsveita verða aðgengilegar á heimasíðu föstudaginn 24. ágúst.
Skólagjöldum er dreift á 6 gjalddaga frá 1. september 2018 til 1. febrúar 2019 og birtast kröfurnar í heimabanka. Opnað verður fyrir notkun frístundakorts Reykjavíkurborgar til að greiða niður skólagjöld í Tónskóla Sigursveins 25. ágúst og kröfur í heimabanka munu lækka í samræmi við ráðstöfun á frístundastyrknum.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans í síma 568 5828 eða með tölvupósti á netfangið tsdk@ismennt.is ef óskað er nánari upplýsinga eða gera þarf breytingar varðandi skólavist árið 2018-19.
Upplýsingar um námsgjöld fyrir skólaárið 2018-2019 má finna hér.